Fara beint í efni
Vitvélar

Varahlutir

Bremsubúnaður í þungabíla og hópbifreiðar

Við útvegum bremsudælur, bremsuklossa og bremsudiska í vörubíla, hópbifreiðar og eftirvagna frá viðurkenndum evrópskum framleiðendum. Sendið okkur vörunúmer eða upplýsingar um gerð ökutækis. Þið fáið verð og afhendingartíma samdægurs á virkum dögum.

Senda fyrirspurn
Uppgerð bremsudæla, Knorr-Bremse SB/SN7 A -12°, vinstri

Hvað við útvegum

Bremsudælur
Meritor Elsa 225 (axial og radial), Knorr-Bremse SB6, SB7, SN6, SN7, SK7 og Wabco-gerðir. Bæði vinstri og hægri. Uppgerðar einingar með ábyrgð.
Bremsuklossar og bremsudiskar
Bremsuklossar og bremsudiskar fyrir sömu hemlakerfi. Valdir eftir gerð ökutækis.
Íhlutir í rafknúnar hópbifreiðar
Varahlutir í rafknúnar rútur og smárútur — hemlakerfi, fjöðrun, hurðabúnaður og rafkerfi.
Annað eftir beiðni
Fáum við vörunúmer eða mynd af merkiplötu getum við í flestum tilvikum útvegað hlutinn. Það kostar ekkert að spyrja.
Uppgerð bremsudæla, Meritor Elsa 225 Axial, vinstri
Uppgerð bremsudæla, Knorr-Bremse SB/SN6 A +15°, vinstri
Uppgerð bremsudæla, Wabco MAXX22T, vinstri

Finnið réttu bremsudæluna

Leitið eftir framleiðanda, gerð hemlakerfis eða vörunúmeri. Veljið „Bæta við fyrirspurn“ við þá hluti sem þið viljið fá tilboð í og sendið okkur listann.

MyndFramleiðandiGerðHliðVörunúmerOEM-nr.Bæta við fyrirspurn
MeritorMeritor Elsa 225 AxialVinstriTCM.110.728LRG728
MeritorMeritor Elsa 225 AxialHægriTCM.110.729LRG729
MeritorMeritor Elsa 225 RadialVinstriTCM.120.727LRG727
MeritorMeritor Elsa 225 RadialHægriTCM.120.726LRG726
MeritorMeritor Elsa 225 AxialVinstriTCM.110.730LRG730
MeritorMeritor Elsa 225 AxialHægriTCM.110.731LRG731
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7 A -12°VinstriTCK.070.090K003799
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7 A -12°HægriTCK.070.100K003800
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN6VinstriTCK.060.030K013173
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN6HægriTCK.060.040K013174
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN6 A +15°VinstriTCK.060.010K002923
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN6 A +15°HægriTCK.060.020K002924
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7VinstriTCK.070.190K003811
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7HægriTCK.070.200K003812
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7VinstriTCK.070.270K026763
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7HægriTCK.070.280K026764
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7VinstriTCK.070.290K040953K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB/SN7HægriTCK.070.300K040954K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB7 R +93°VinstriTCK.170.010K002962
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB7 R +93°HægriTCK.170.020K002962
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB7 R +93°VinstriTCK.170.030K002964
Knorr-BremseKnorr-Bremse SB7 R +93°HægriTCK.170.040K002965
Knorr-BremseKnorr-Bremse SK7VinstriTCK.270.020K012634
Knorr-BremseKnorr-Bremse SK7HægriTCK.270.010K012633
Knorr-BremseKnorr-Bremse SL7 AVinstriTCK.370.020K052381K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SL7 AHægriTCK.370.010K052380K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SM7 AVinstriTCK.470.020K046529K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SM7 AHægriTCK.470.010
Knorr-BremseKnorr-Bremse SM7 AVinstriTCK.470.040K052390K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse SM7 AHægriTCK.470.030K052390K50
Knorr-BremseKnorr-Bremse ST7VinstriTCK.570.020
Knorr-BremseKnorr-Bremse ST7HægriTCK.570.010ST7001
WabcoWabco PAN19-1VinstriTCW.191.01040195037
WabcoWabco PAN19-1HægriTCW.191.02040195038
WabcoWabco MAXX22TVinstriTCW.220.0106402220030
WabcoWabco MAXX22THægriTCW.220.0206402220040

Vörunúmer eru til leitar og samanburðar. Berið ávallt gerð og hlið saman við merkiplötu ökutækisins áður en pantað er.

Hvernig pöntun gengur fyrir sig

  1. 01

    Fyrirspurn

    Þið sendið vörunúmer, upplýsingar um gerð ökutækis eða mynd af merkiplötu.

  2. 02

    Verð og afhending

    Við sendum verð, afhendingartíma og upplýsingar um skilagjald samdægurs á virkum dögum.

  3. 03

    Staðfesting

    Þið staðfestið pöntunina og við pöntum vöruna. Vitvélar ehf. gefa út reikning með íslenskum VSK.

  4. 04

    Afhending

    Varan kemur til Reykjavíkur með skipi. Við tollafgreiðum og látum vita þegar hún er tilbúin til afhendingar.

Skilagjald vegna gamallar dælu

Skilagjald bætist við verð uppgerðra bremsudælna. Það er endurgreitt þegar gömlu dælunni er skilað til okkar og hún uppfyllir skilyrðin hér að neðan. Fjárhæð skilagjaldsins kemur fram í tilboðinu.

Skilyrði fyrir endurgreiðslu:

  • Dælan er heil, dæluhúsið óbrotið og ekki hefur verið soðið í dæluna
  • Dælan er af sömu gerð og sú sem keypt var
  • Dælunni er skilað innan þess frests sem tilgreindur er í tilboðinu

Senda fyrirspurn um varahlut

Nákvæmar upplýsingar flýta fyrir tilboðsgerð. Best er að senda vörunúmer af merkiplötu, en upplýsingar um gerð og árgerð ökutækis duga oftast líka.

Flýtir fyrir tilboðsgerð

Skráið vörunúmer af merkiplötu eða gerð og árgerð ökutækis.