Fara beint í efni
Vitvélar

Rafknúin hópbifreið · M3, klassi II

7,5 metra rafmagnssmárúta fyrir 19 farþega

Rafknúin smárúta fyrir hópferðir og akstursþjónustu sveitarfélaga. 170 kWh CATL-rafhlaða, DANA-drifrás og GSR II-öryggisbúnaður eru í staðalbúnaði. Vitvélar selja eina útfærslu á Íslandi — 19 sæti með 170 kWh rafhlöðu.

Perluhvít EURISE rafmagnssmárúta séð að framan og frá hlið í íslensku landslagi

7,49m

Lengd

19+1

Sæti

170kWh

Rafhlaða

425km

Drægni (WLTP)

15,3m

Snúningsþvermál

Perluhvít EURISE smárúta frá hlið við íslenskan þjóðveg

Tæknilýsing

FramleiðandiYangzhou Yaxing / Asiastar
ÖkutækjaflokkurM3, klassi II (WVTA)
Sæti19 farþegar + ökumaður
RafhlaðaCATL BC5, 170 kWh, vökvakæld — 10 ára ábyrgð
DrifrásDANA, 150 kW / 1.200 Nm — 8 ára ábyrgð
Drægni425 km (WLTP)
Orkunotkun40 kWh/100 km (SORT2)
DC-hleðsla122 kW, CCS2 (evrópustaðall)
AC-hleðsla22 kW (evrópustaðall)
Hámarkshraði100 km/klst.
Lengd × breidd × hæð7.490 × 2.000 × 2.760 mm
Ytri málBreidd með speglum: 2.440 mm · hæð með þakloftkælingu: 2.885 mm
Hjólhaf4.325 mm
Snúningsþvermál15,3 m (kantur að kanti)
Heildarþyngd6.500 kg
Eiginþyngd4.930 kg
Burðargeta1.570 kg
Ásþungi2.100 kg framan / 4.400 kg aftan
Hemlar og fjöðrunDiskhemlar að framan og aftan, rafrænn stöðuhemill · MacPherson-fjöðrun að framan, blaðfjöðrun að aftan
Hjólbarðar215/75R17.5, tvöfalt afturhjól, varadekk

AC-hleðsla og DC-hraðhleðsla

AC 22 kW — full hleðsla yfir nótt

Bíllinn hleður á 22 kW í AC-hleðslu og það tekur um 7 klst. og 45 mín. að hlaða úr 0% í 100%. AC-hleðslustöðvar er auðvelt að setja upp og þær kosta brot af því sem DC-hraðhleðslustöð kostar. Slíkar stöðvar er að finna út um allt land, á flestum ferðamanna- og gististöðum.

Hraðhleðsla DC 122 kW

CCS2-hraðhleðsla á 122 kW er í staðalbúnaði. Bíllinn fer 2,5 km á hverri kWh (425 km á 170 kWh), svo hálftíma stopp á fullu afli bætir um 150 km við drægnina og hleðsla úr 20% í 80% — 102 kWh, um 255 km — tekur um klukkustund. Hraðhleðslustöðvar eru komnar víðsvegar um landið og góð regla fyrir bílstjórann er að setja alltaf í samband þegar stoppað er lengur en 10 mínútur.

Hleðslutímar eru reiknaðir út frá uppgefnu hleðsluafli og orkunotkun. Rauntími ræðst af hleðslustöð, hitastigi og hleðslustöðu rafhlöðunnar.

Öryggi — GSR II í staðalbúnaði

  • Sjálfvirk neyðarhemlun (AEBS), stöðugleikastýring (ESC) og akreinavari (LDWS)
  • Snjöll hraðaaðstoð (ISA, EU 2021/1958) og undirbúningur fyrir áfengislás (EU 2021/1243)
  • Blindsvæðisvörn hjólandi (BSIS, R151) og vörn gagnvart óvörðum vegfarendum við beygju (MOIS, R159)
  • Bakkskynjun óvarinna vegfarenda (R158), bakkmyndavél með hitun og bakkskynjarar
  • Þreytu- og athyglisvöktun ökumanns (DDAW, EU 2021/1341; ADDW, EU 2023/2590) og netöryggi skv. R155/R156
  • Loftpúði ökumanns, þriggja punkta belti í öllum sætum, TPMS og akstursvörn þegar hurð er opin

Búnaður og þægindi

  • 12,3" margmiðlunarskjár, stafrænt mælaborð og DAB-útvarp; USB- og USB-C-tengi frammi og hjá farþegum
  • Loftfjaðrað Grammer-ökumannssæti með 12 V dælu og fjölnota stýri
  • Farþegasæti með ECE-vottun, armpúðum, tímaritaneti og stillanlegu baki
  • Glerþak (60 × 70 cm, tvöfalt hert gler), LED-lýsing og lesljós við hvert sæti
  • Hljóðeinangrunarpakki B og hátalarakerfi með hljóðnema við ökumannssæti
  • Panoramarúður, LED-aðalljós, þokuljós, útiljós yfir hurðum, skiltakassi og fánafestingar
Farþegarými EURISE með perluhvítum innréttingum, sætum, glerþaki og lesljósum
Ökumannsrými EURISE með stafrænu mælaborði og íslensku landslagi fyrir utan

Byggð fyrir norðlægar aðstæður

Undirvörn og tæringarvörn

Norræn undirvörn frá framleiðanda. 1,2 mm álplötur með rafhúðaðri yfirborðsmeðferð og höggdeyfilími yfir afturás og afturhluta, framan við afturás og undir rafhlöðu, auk hlífar undir framhúsi. Tæringarvörn er miðuð við strandloftslag — seltu og vetrarsöltun.

Hitun

12 kW hitunargeta í farþegarými: 6 kW varmadæla í þakeiningu og 6 kW PTC-rafhitun. Til viðbótar 4 kW PTC-gólfhitari og 2,8 kW PTC-hitari í ökumannsrými. Upphituð afturrúða, upphitaðir rafstýrðir speglar og hitun í bakkmyndavél.

Geymslurými

Geymslurými með festingum fyrir snjókeðjur, slökkvitæki og sjúkrakassa.

Perluhvít EURISE smárúta séð frá vinstri hlið og að framan í íslensku landslagi

Aðgengi, farangur og dráttargeta

Afturhurð opnast um 270° og er með festingu. Afturhlutinn er sérhannaður fyrir hjólastólaaðgengi og undirbúinn fyrir handvirkan ramp. Rafdrifin útsveifluhurð með klemmuvörn og flatt gólf við inngang. Farangursrými aftast. Aftakanlegt dráttarbeisli skv. ECE R55.

Burðargetan er 1.570 kg. Þegar öll farþegasæti eru nýtt fer stærstur hluti hennar í farþega. Við förum yfir þyngd farþega, farangurs og búnaðar með ykkur miðað við dæmigerða ferð.

Opin farþegahurð EURISE með handriði og þrepum við inngang
Afturhluti EURISE með myndavél og ljósum yfir afturhurðum í íslensku landslagi

Styrkur, kílómetragjald og ökuréttindi

Styrkur — allt að 33% af kaupverði án VSK

Bíllinn er M3-ökutæki yfir 5 tonnum og fellur undir styrki Loftslags- og orkusjóðs til kaupa á hreinorkuökutækjum — allt að 33% af kaupverði án VSK, að hámarki 15 m.kr., óbreytt 2026–2028. Kaupandi sækir sjálfur um til Umhverfis- og orkustofnunar innan 12 mánaða frá nýskráningu.

Kílómetragjald — 11,06 kr./km

Heildarþyngd 6.500 kg fellur í bilið 6.001–7.000 kg og gjaldið er það sama hvort sem ökutækið gengur fyrir rafmagni eða olíu. 80% hreinorkuafslátturinn nær aðeins til ökutækja yfir 10 tonnum.

Ein útfærsla, D-réttindi

Vitvélar selja eina útfærslu á Íslandi: 19 sæti með 170 kWh rafhlöðu. 19 farþegasæti kalla á D-réttindi hjá ökumanni.

Hver stendur að baki EURISE?

Kynnist Asiastar, Weichai og iðnaðarsögunni að baki rafknúnum EURISE-bílum.

Um EURISE

Fá tilboð í EURISE

Tilgreinið fjölda ökutækja, óskaðan afhendingartíma, daglega vegalengd og hleðsluaðstöðu. Látið einnig vita hvort þörf sé á hjólastólaaðgengi. Þið fáið verðtilboð með sundurliðuðum aukabúnaði og útreikningi á styrknum.

Flýtir fyrir tilboðsgerð

Tilgreinið fjölda ökutækja, óskaðan afhendingartíma, daglega vegalengd og hleðsluaðstöðu.