Þjónusta
AI-svörun

Gervigreind sem svarar — í síma, pósti og spjalli.

Sjálfvirk svörun sem bókar, afbókar og leysir fyrirspurnir allan sólarhringinn. Tengd beint við bókunarkerfið þitt og talar tungumál viðskiptavinarins.

Viðskiptavinir hringja, senda póst og spjalla á öllum tímum sólarhringsins. AI-svörun Vitvéla tekur á móti þeim öllum — svarar strax, bókar í dagatalið þitt og sendir málið áfram á starfsmann þegar mannshöndin þarf að koma að. Enginn biðtími, engin töpuð símtöl, engin fyrirspurn sem gleymist.

Hvað hún gerir

Heil símsvörun og þjónustuver — án viðveru.

Sími, póstur og spjall

Ein lausn sem svarar í gegnum öll samskipti — talsímtöl, tölvupóst og spjall á vefnum.

Talar tungumál viðskiptavinarins

Gervigreindin greinir sjálf hvaða tungumál er talað og svarar á því — íslensku, ensku og fleiri.

Beintengd við bókunarkerfið

Tengist helstu bókunarkerfum og dagatölum sem notuð eru í dag. Bókar, afbókar og endurbókar í rauntíma.

Leysir algengar fyrirspurnir

Svarar spurningum um opnunartíma, verð og þjónustu — og sendir greiðslulink þegar við á.

Áframsending á starfsmann

Þegar málið þarf mannshönd sendir hún það áfram, með samhengi og samantekt svo ekkert glatast.

Vöktuð allan sólarhringinn

Keyrir 24/7 á okkar kerfi. Þú sérð samtöl og bókanir jafnóðum.

Svona byrjar þú

Frá viðtali í virka svörun.

01

Þarfagreining

Við tökum viðtal, förum yfir hvernig þú vilt svara og hvaða kerfi þú notar.

02

Tenging

Við tengjum svörunina við bókunarkerfið og dagatalið þitt.

03

Þjálfun á þínum tóni

Hún lærir röddina þína, svörin og verkferlin sem skipta máli.

04

Í loftið

Svörunin fer í gang, vöktuð, og við fínstillum hana með þér.

Bóka þarfagreiningu fyrir AI-svörun.

Við förum yfir þínar þarfir og gerum sérsniðið tilboð.

Við notum aðeins þær kökur sem þú samþykkir.

Nauðsynlegar kökur halda síðunni gangandi. Greining og markaðsmælingar eru aðeins virkjaðar ef þú velur það sérstaklega.