Flest AI verkefni byrja of stór. Það á að laga þjónustu, markaðssetningu, innri ferla og skýrslugerð í einni og sömu lotu. Niðurstaðan verður yfirleitt langur undirbúningur og lítið sem fer í loftið.
Við vinnum öfugt. Við veljum eitt verkferli sem er bæði leiðinlegt, endurtekið og nógu virðismikið til að réttlæta fókus.
Af hverju 10 dagar?
Tíu dagar neyða fram góða forgangsröðun:
- gögn og kerfi verða að vera skýr
- undantekningar verða að vera sýnilegar
- ábyrgð verður að liggja fyrir
- mælingar verða að vera ákveðnar áður en build hefst
Tíu dagar henta líka raunverulegum rekstri. Fyrirtæki þurfa ekki sex vikna teikningar til að komast að því hvort tiltekin pósthólf, bókunarbeiðnir eða skjalaflæði eigi að færast yfir í sjálfvirkni.
Það sem er inni í sprintinu
- kortlagning á trigger, útkomu og undanþágum
- smíði á sjálfri sjálfvirkninni
- aðganga- og gagnahreinlætisrýni
- vöktun og mælaborð
- handoff með skjölun
Það sem er viljandi ekki inni
- óljós “AI strategy”
- fjölmargar deildir í einu
- verkfærasala
- óendanleg fínstilling áður en eitthvað fer í notkun
Þröngur skóp er ekki takmörkun. Hann er ástæðan fyrir því að verkefnið klárast.